29.9.2009 | 07:01
Næturenduro í kvöld ?
Hvernig eru menn stemdir fyrir kvöldið, eigum við að keyra í kvöld í Bolöldu?
Endilega hendið inn spjalli.
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.9.2009 | 23:11
Næturenduro á morgun 22. sept
Jæja, hvernig væri að starta þessu næturendurofjöri sem við keyrðum á í fyrra.
Mæting í Bolöldu kl 19:45 og brunað um það frábæra svæði í einhvern tíma.
Ertu með ?
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
28.8.2009 | 13:08
Næturenduro veturinn 2009 - 2010
Sælir hjólarar.
Nú er að koma næturendurotíð og þá er vonandi að allir séu klárir í bátana... tala nú ekki um ef þetta verður eins og í vatnsveðrinu mikla síðasta haust 
Eigum við ekki að halda áfram þar sem frá var horfið í vor og hittast alltaf á þriðjudagskvöldum kl 19:45 (lagt af stað 20.00) á einhverjum fyrirfram ákveðnum stað og hjóla einn hring?
Hvað segið þið, hvenær eigum við að hefja leikinn og eru einhverjar tillögur um leiðir ?
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.4.2009 | 11:55
Þorlákshöfn er málið !!
Þessa dagana meðan allt er svona blautt, þá er um að gera að nota þá staði sem eru opnir og engin hætta á að skemma umvherfið, og má þar nefna nýja og frábæra endurobraut í Þorlákshöfn.
Brautin er sandur útí eitt, hólar og hæðir, beygjur og bara fjör.
Einherjir snillingar ætla þangað í kvöld og hefur meira að segja frést að Trialklúbburinn Trausti ætli að renna austur um kl 18.00.
Munið bara að greiða brautargjaldið á bensínstöðinni í Þorlákshöfn áður en þið farið í brautina.
Hér má sjá mynd úr brautinni og fyrir neðan er kort af staðnum, en fyrir óvana getur verið snúið að finna brautina (nefnum engin nöfn, en fyrsti stafurinn er Kalli Sig)
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 12:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.4.2009 | 17:50
Bolalda síðasta þriðjudag
Fyrir þá sem ekki mættu en vilja sjá hvernig stemningin var í Bolöldu síðasta þriðjudag, þá er hægt að fara inná þessa MYNDASÍÐU ... BARA GAMAN 
Hér má einnig sjá myndband frá síðustu túrum, en þar er Ísak í aðalhlutverki (enda sett saman af honum)
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
31.3.2009 | 15:07
Bolalda í kvöld - 31. mars
Jæja félagar, núna er hugmynd að skella sér í Bolöldu í kvöld en þriðjudagstúrarnir hafa legið niðri um hríð vegna umhleypinga.
Við ætlum nokkrir að mæta uppeftir kl 18.30 og hjóla eitthvað fram á kvöld, tæta í snjónum, kaffæra okkur í skafla og hafa fjör.
Við fórum uppí Bolöldu á föstudaginn og var færið þannig að við gátum alveg keyrt á naglalausum dekkjum, en hefði verið aðeins betra á trellum, en ekki nauðsyn. Hvort færið sé orðið harðara síðan þá er ekki vitað (fyrr en í kvöld).
Allir sem nenna mæta ferskir í kvöld.
//Kalli Sig
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
17.3.2009 | 10:13
Bolalda í kvöld 17. mars
Í kvöld er það Bolalda.
Síðasta þriðjudag mættu 13 manns og var hörku geim í gangi, erfitt færi en allir í þvílíku banana stuði. Hvernig skyldi færið verða í kvöld 
Heyrst hefur að verið sé að hópa sig saman í ferð til Vestmannaeyja um helgina í einhverja svakalegustu trillingsferð ever .... þeir sem vita meira um málið henda kannski inn commenti..
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
10.3.2009 | 08:20
Nægur snjór - Bolalda í kvöld 10. mars
Nú er ekkert annað að gera en að mæta spræk/ur í Bolöldu í kvöld. Veðrið er þokkalega geðveikt og lítur út fyrir eitt besta kvöldið fram að þessu.
Menn eru hvattir til að drullast til að setja neyðarádreparann á hjólið ef þeir ætla ekki að enda eins og sá er Gunni talar um í commentinu hér að neðan, en sá fékk víst afturdekkið á fullu gasi í smettið. Slatti af sporum þar. Við óskum honum bara góðan bata og vonandi kemst hann sem fyrst aftur á hjólið, með ádrepara. 
Ef færið verður svakalegt, þá er spurning hvort hringurinn í kvöld verði eitthvað stækkaður útfyrir Bolöldu í fjöllin í kring, en það kemur í ljós í kvöld.
Mætum helill..ir, drögum með okkur alla sem okkur dettur í hug og höfum fjör...
Tætt af stað kl 20.00 (ef maður finnur brautina) 
//Kalli Sig
Ps. Rannsóknir sýna að þeir sem eru hvað brjálaðastir á hjólunum eru bara með of þröngan hjálm. Það sem styður þessa kenningu er að þegar þeir eru ekki með hjálminn þá líta þeir nokkuð eðlilega út, þegar þeir svo troða á sig of litlum hjálmi þá nær ekkert súrefni að komast til heilans og þeir gjörsamlega missa það. Ef þú ert einn af þeim sem átt í vandræðum með að hemja þig, spáðu þá í þetta með hjálmastærðina 
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2009 | 11:52
Bolalda í kvöld !!
Í kvöld kl 20.00 eru græjurnar ræstar og þandar í botn á Bolöldusvæðinu.
Hellingur af liði var þar síðastliðin laugardag og heyrði undirritaður að þar væri fullt af ævintýrum, bæði í harðfenni og líka í mjúkum djúpum alvöru "festi-snjó" 
Nú er bara að koma druslunum uppeftir og taka á því... djö.. verðu gaman, maður er bara æstur 
3.3.2009 | 11:48
Hekluferð sunnudaginn var
Við fórum nokkrir galvaskir ferðalangar á Hekluna sunnudaginn 1. mars.
Tókum af við Rjúpnavelli og brunuðum af stað. Hægt var að keyra allstaðar því nægur snjór var á svæðinu og því engin hætta á að skemma neitt.
Ætluðum að keyra uppá Heklu og fara svo eitthvað lengra innúr, en sökum þyngra færis við Hekluna treystu sumir sér ekki til að reyna og var því beygt af leið og ekið sem leið lá kringum Krakatinda og þaðan aftur niður á Rjúpnavelli, með viðkomu í úrbræðslubrekkunni. Færið virtist vera betra sunnan megin í öllum hólum og hlíðum, en þar hafði náð að bráðna og frysta aftur, og því meira um harðfenni.
Flott ferð og alveg komið færi til að djöflast út um allt á snjó.
Myndir eru hér á myndasíðunni minni
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)












